Myvideo

Guest

Login

Kvennaverkfall | Women's Strike - Iceland 24th October 2023 - fram stelpur

Uploaded By: Myvideo
1 view
0
0 votes
0

Áfram stelpur | Lag: Gunnar Edander | Texti: Dagný Kristjánsdóttir og Kristján Jónsson Í augsýn er nú frelsi, og fyrr það mátti vera, ný fylkja konur liði og frelsismerki bera. Stundin er runnin upp. Tökumst allar hönd í hönd og höldum fast á málum þó ýmsir vilji aftur á bak en aðrir standa í stað, tökum við aldrei undir það. En þori ég vil ég get ég? Já ég þori, get og vil. En þori ég vil ég get ég? Já ég þori get og vil. Og seinna börnin segja: sko mömmu, hún hreinsaði til. Já seinna börnin segja: þetta er einmitt sú veröld sem ég vil. (Viðlag) Áfram stelpur standa á fætur slítum allar gamlar rætur þúsund ára kvennakúgunar. Ef einstaklingurinn er virkur verður fjöldinn okkar styrkur og við gerum breytingar. Atkvæði eigum við í hrönnum komum pólitíkinni í lag sköpum jafnrétti og bræðralag. Áfram stelpur, hér er höndin hnýtum saman vinaböndin verum ekki deigar dansinn í. Byggjum nýjan heim með höndum hraustra kvenna í öllum löndum látum enga linku vera í því. Börnin eignast alla okkar reynslu, sýnum með eigin einingu, aflið í fjöldasamstöðu. Stelpur horfið ögn til baka á allt sem hefur konur þjakað stelpur horfið bálreiðar um öxl. Ef baráttu að baki áttu berðu höfuð hátt og láttu efann hverfa 'unnist hefur margt. Þó er mörgu ekki svarað enn: því ekki er jafnréttið mikið í raun, hvenær verða allir menn taldir menn með sömu störf og líka sömu laun? (Fyrsta vísa endurtekin)

Share with your friends

Link:

Embed:

Video Size:

Custom size:

x

Add to Playlist:

Favorites
My Playlist
Watch Later