Ráðherrann er ný, leikin íslensk þáttaröð sem hefur göngu sína á RÚV sunnudaginn 20. september. Þegar forsætisráðherra greinist með geðhvarfasýki þurfa samstarfsmenn hans að leggja bæði stöðugleika ríkisins og einkalíf sitt að veði til þess að halda sjúkdómnum leyndum fyrir þjóðinni. Ólafur Darri Ólafsson er í hlutverki ráðherrans. Með önnur stór hlutverk í þáttunum fara Aníta Briem, Þuríður Blær Jóhannsdóttir og Þorvaldur Davíð Kristjánsson. Leikstjórn var í höndum Nönnu Kristínar Magnúsdóttur og Arnórs Pálma Arnarsonar. Handrit skrifuðu Birkir Blær Ingólfsson, Björg Magnúsdóttir og Jónas Margeir Ingólfsson.
Hide player controls
Hide resume playing